Ég tek undir það með Árna Svani að ég er hrifnari af orðinu annáll en blogg. Íslendingar mættu vera duglegri að hleypa gömlum orðum í endurnýjun lífdaganna í stað þess að einblína á nýyrðasmíð. Reynslan sannar að nýyrðasmíð er aðeins á fárra valdi og flestir gefast upp á henni.
Það er hins vegar ótrúleg lítilþægð að heykjast sífellt í hnjáliðunum fyrir engilsaxanum (eins og danskinum áður). Vinsældir tökuorða minna mig hálfvegis á ástandsmálið þegar íslenskum ungmeyjum þótti draumur að vera með dátum (í fleirtölu). Það er reyndar hrein og klár heppni að orðið blogg skuli falla að íslensku málkerfi og brjóta engar íslenskar hljóðkerfisreglur (semsé nauðgar engum). En er það alltaf nóg til þess að gera áningarfarþega orðanna að pólitískum hælisleitendum og bjóða þeim íslenskan ríkisborgararétt á klósettinu inni á Leifsstöð!?
Ég hef meiri áhyggjur af atkvæðum orðsins blogg og hrynjandi þess en hvort það fellur að íslenska beygingarkerfinu. Þetta er eitthvað svo endasleppt. Upphrópun frekar en merking, eins og kokhljóð Vandráðs í Tinnabókunum í gamla daga. Minnir mig satt að segja á lítinn stjúpson minn sem reynir að herma eftir hljóðinu sem heyrist í klósettskálinni þegar hann situr þar og gerir stykkin sín: plobb.
En það er kannski í samræmi við marga annála.
Sæll Binni og takk fyrir skemmtilegan vef.
Ég er að vandræðast með frekar stórt þýðingarverk og þarf einmitt að þýða orðið blog, sem mér finnst persónulega mjög afleitt.
Annáll er ekki alveg að virka hjá mér…
Hvernig finnst þér orðið dagbók?
Ertu hugsanlega með eitthvað annað og betra?
Sæll Ásgeir.
Þessi færsla var skrifuð 2002 og síðan þá hafa liðið a.m.k. 20 ár í netheimum! Orðið blogg virðist hafa fest vel rætur og rutt vefdagbókinni gömlu úr vegi, enda verður seint sagt að bloggarar haldi allir dagbók. Ég held að það væri óráð að hunsa með öllu orðið blogg úr því sem komið er.
Samkvæmt tölvuorðasafninu þá er talað um raus, vefraus eða vefleiðari. Ég mun halda mig við Blogg og bloggari því ég sé enga ástæðu fyrir að þýða það frekar en blog+g.
http://tos.sky.is/tos/to/search/?srch_string=blogg
Ég tek í sama streng.