Nú er ég að leggja lokahönd á nýjan vef á nýrri slóð. Að þessu sinni set ég upp nýja heimasíðu á eigin léni, binni.is. Þar með hefur langþráður draumur rætst.
Ég vona að þeir sem hafa verið fastir gestir á fyrri síðum mínum breyti tengingum og haldi áfram að heimsækja mig. Ég hef sett upp nokkrar undirsíður með skýringum og upplýsingum um hvernig ég hugsa þennan vef. Ég hvet ykkur öll til þess að lesa þann texta.
Þessi vefur á eftir að aukast að umfangi þegar fram líða stundir. Ég hyggst að mestu sameina þá tvo staði sem ég hef verið á frá árinu 1999, annars vegar heimasíðu mína á Háskólavefnum og hins vegar annál minn á Annáll.is.
Efnisflokkar eru allmargir og birtast jafnóðum og í þá er fyllt.
Flott að þú ert kominn með eigið lén og svona smekklegan vef! Mér finnst þó að þú ættir að breyta formi vefslóðanna, þessi spurningamerki eru svo leiðinleg og það er líka tiltölulega einfalt að gera þetta í WP.
Þökk fyrir innlitið, Árni.
Nei, ég kýs einmitt að hafa þetta svona. Mér leiðast tilbúnar vísanir.
Mér leiðast spurningamerki
Ég átta mig ekki alveg á því hvað þú átt við þegar þú talar um „tilbúnar vísanir“ Áttu við að vísun á forminu /ár/mánuður/titill teljist tilbúin af því að það form vísunar er ekki sjálfgefið í WordPress?
Ég þoli ekki mörg skástrik og langar dagsetningar.
Ég held að þetta sé bara smekksatriði. Mér finnst spurningarmerkin og samasemmerkin flottari.
/ár/mánuður/dagur/klukka/ er bara tilbúningur. Þetta er fagurfræði.
Þetta er flottur vefur strákur! Hvað sem líður skástrikum og spurningamerkjum
Innilega til hamingju með hann. Þú ert enn að koma á óvart
Viðbætur: Ég hef sannfærst um að betra sé að breyta vísunum eins og Árni leggur til. Vísunum hefur því verið breytt.