Óséð hönnun

Ég hef uppgötvað það að ég er farinn að senda frá mér prenthönnun án þess að sjá niðurstöðuna. Ég unga út bæklingum, nafnspjöldum og öðrum fjára án þess að sjá neitt af því nokkurn tíma. Er það óheillaþróun eða er ég að verða öruggari með mig?

Á mánudaginn hittumst við yfir hádegisverði, Vilhjálmur Árnason, Lúðvík Gústafsson og ég, á Hótel Sögu. Prófessorinn ljúfi afhenti okkur Lúðvík eintök af „Siðfræði lífs og dauða“ á þýsku. Ég sendi bókina frá mér á PDF-formi á netinu til LIT-forlagsins í Þýskalandi í sumarlok í fyrra. Hún er næstum ársgömul. Stundum er gaman að sjá afrakstur erfiðisins svo löngu seinna.

Comments

  1. Arngrímur segir:

    Þýddir þú hana á þýsku?

  2. Binni segir:

    Nei, alls ekki. Það gerði Lúðvík Gústafsson. Ég átti við hönnunina og umbrotið.

  3. Ertu sáttur við útkomuna?

  4. Binni segir:

    Já, nokkuð svo. Síðan er höfundurinn ánægður og það er alltaf mikils virði.

  5. Til hamingju með þetta og öll þín umbrotsverkefni. Kveðja.

  6. Carlos segir:

    Rosalega er hún … appelsínugul!

Submit a Comment