QuarkXPress 7

Umbrotsforritið QuarkXPress hefur átt erfitt uppdráttar um alllangt skeið eða allar götur frá því Adobe náði forskoti í þróun hugbúnaðar af þessu tagi með InDesign. En nú má búast við einhverjum sviptingum á þessum markaði því að nýjasta útgáfan af QuarkXPress, útgáfa 7.0, stendur InDesign fyllilega á sporði.

Nýja útgáfan kom út fyrr á þessu ári og hefur vakið verðskuldaða athygli. Ég sótti mér 30 daga reynslueintak á dögunum og braut um bók og hannaði bókarkápu til þess að prófa forritið (sjá mynd hér til vinstri). Bókin kemur út hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi í næstu viku.

Ekki er hægt að segja annað en að nýja útgáfan af QuarkXPress komi á óvart því að hún slær InDesign að sumu leyti við. Dave Girard fer í saumana á þessu með því að bera saman kosti forritanna beggja (sjá hér). Sigurður Ármannsson hefur einnig fjallað um nýju útgáfuna á vef sínum font.is (sjá t.d. hér).

Ég lærði á Kvarkinn á sínum tíma og var aldrei sáttur við InDesign enda þótt ég hafi verið „nauðbeygður“ að nota hann. Satt að segja varð ekki undan því vikist að leggja Kvarkinum að sumu leyti eftir útgáfu 5.0. En ég hef verið tregur að segja skilið við hann með öllu og það veit ég að margir aðrir umbrotsmenn glíma við samskonar ástarþrá. Ég komst að því á dögunum að nokkrir umbrotsmógúlar vinna ennþá á Kvarkinn enda þótt InDesign hafi verið betri kostur að flestu leyti síðastliðin ár. Þeir eru sumir í skýjunum eftir að útgáfa 7.0 kom út.

Verðlaunamynd

Nú er reynsluútgáfan sem ég sótti á netið runnin út og næsta skref er að taka ákvörðun um hvort ég kæri mig um að fjárfesta í þessum grip. Ég hef í raun og veru þegar gert upp hug minn. Er einhver sem vill fjárfesta með mér?

Ég veit að vísu ekki alveg hvernig á að fara að þessu. Á Íslandi er ekkert Quark-umboð. Sá sem vill eignast forritið verður að greiða það rafrænt og láta senda sér það að utan. Gallinn við Kvarkinn er nefnilega sá að hann er eingöngu seldur á geisladiski. Það er unnt að greiða hann rafrænt, sækja sér prufueintak á netið, en við kaup er hann eingöngu afhentur á diski.

Þótt söluaðferðin sé úrelt verður hið sama vonandi ekki sagt um forritið sjálft. Spennandi verður að fylgjast með þróuninni.

Comments

  1. Árni Svanur segir:

    Ég kynntist Quark Express fyrir mörgum árum og hafði ekkert nema gott um það forrit að segja. Hef aldrei lært á InDesign, en langar að kynna mér það eftir lofsöng hönnuðar sem ég hef skipt svolítið við.

  2. Binni segir:

    Kvarkinn sækir nú á að nýju og er ekki síðri, já, ef ekki betri.

  3. Já ég held að þetta séu góðar fréttir fyrir gamla hunda í umbroti, sumir voru aldrei sáttir við Indesign. Þetta hefur auðvitað líka að gera með hverju menn eru vanir, ég hef til dæmis unnið u.þ.b 2svar í Quark og þoldi það ekki enda byrjaði ég að fikta í Indesign.
    Reyndar fyrir mig þá er Indesign heillandi þar sem það er hluti að CS2 pakkanum og gerir suma hluti svo andskti einfalda eins og drag and drop frá PS í indesign og frá Illanum.
    En ég veit að þu ert glaður með þetta, sem er gott!

    kv Snorri

  4. ps fíla útlitið á bókinni, einfalt og flott -

  5. Óli Ágústar segir:

    Tek undir með útlitið á bókinni.
    Þá er myndin mjög táknræn fyrir heiti hennar.
    Annars vegar Dómkirkjan, hins vegar Alþingishúsið
    og Jón frá Hrafnseyri Sigurðsson á milli og ber við himinn.
    Tókst þú myndina?

Submit a Comment