Íslenskar gæsalappir fyrir WordPress

Bastarður víkinga hefur búið til verkfæri eða íbót fyrir WordPress-kerfið sem breytir enskum gæsalöppum í íslenskar. Íbótina má nálgast hér.

Nú er engin afsökun lengur til að láta í minni pokann fyrir Tjallanum. Sækið þessa íbót, Íslendingar!

Comments

  1. Örvar segir:

    Ég breytti sjálfur íbótinni frá Kimmo á þessa vegu fyrir nokkrum mánuðum. Datt þó ekki í hug að birta hana þar sem öll breytingin er að skipta út fimm tölustöfum.

  2. Binni segir:

    Já, ok.

    Ég fór reyndar þá leið að útbúa mína eigin quicktags.js skrá fyrir margt löngu þar sem ég bætti við íslensku gæsunum ásamt nokkrum öðrum algengum atriðum í greinarmerkjasetningu. Ég birti hana aldrei. Þetta verkfæri sem bastarðurinn hefur fram sett er hins vegar kærkomið mörgum og ég vona að sem flestir noti það.

  3. Örvar segir:

    Verst að skráin er ekki aðgengileg hjá honum (PHP reynir að þátta hana). Hérna er annars að finna leiðbeiningar breyta má íbótinni hans Kimmo.

  4. Hmm. Það hefði nú reyndar verið ágætt ef þú hefðir bent mér á þetta.

    Til þess er nú kommentkerfið.

    Reddað.

Submit a Comment