Egill Helga vill ekki vera fífl sem skrifar fyrir fávita. Það er skiljanlegt. Ég væri sama sinnis ef ég fengi greitt hjá Baugi fyrir að blogga — já, eða Wall Street Journal.
Blaðamenn eru hræddir — og fúlir. Skelfileg fífl, margir hverjir. Og lesendur þeirra fávitar, að sjálfsögðu — tómir bloggarar.
Já, það er ekki mikils metið að vera bloggari. Að sjálfsögðu ættum við að halda öllum okkar skoðunum út af fyrir okkur, og aldrei minnast opinberlega á nokkuð sem drífur á daga okkar.
Annars þykja mér rangfærslurnar skelfilegar í greininni á Vísi.is.
Gæti passað að við séum bekkjarbræður ef vera vildi, í íslenskri bókmenntasögu?
Það gæti meira en verið. Ég man ekkert í hvað ég er skráður.