Ég gæti hugsað mér að sjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur verða forsætisráðherra aðeins af einni ástæðu: Til þess að sjá hvernig þetta orðalag venst: Hún forsætisráðherrann.
En ég veit að það tæki Íslendinga miklu skemmri tíma en fjögur ár að venjast þessu orðalagi, enda hafa aðrar konur verið ráðherrar um langt skeið. Þess vegna vil ég alls ekki að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði forsætisráðherra. Vinstri stjórnir hafa löngum verið dýru verði keyptar hér á ystu mörkum hins byggilega heims.
Vinstri mönnum verður tíðrætt um það þessa dagana að kjósendur hafi ekki nógu gott minni. Hallgrímur Helgason segir til dæmis í Fréttablaðinu í dag að minni kjósenda virðist ekki ná lengra aftur en til 16. júní 2006 þegar Geir Haarde gekk inn í stjórnarráðið. Ekkisens flón er þessi rithöfundur! Íslendingar eru svo stálminnugir að þeim dettur ekki í hug að kjósa yfir sig vinstri stjórn. Það kemur Íraksstríðinu ekkert við — þaðan af síður Baugi.
Hitt er svo annað, að til þess að koma í veg fyrir vinstri stjórn hér á landi eru ekki margir kostir fyrir kjósendur. Þannig liggur landið. Þetta vita meira að segja Baugsmenn.
Ég verð einfaldlega að spyrja þig, þótt það virðist fáránlegt, hvað í ósköpunum þú eigir við hérna. Ertu að segja, að þrátt fyrir það að ríkisstjórnarflokkarnir séu fullkomnlega afleitur kostur, þá séu þeir eini kosturinn?
Þú gerir þér grein fyrir að á Íslandi hefur aldrei verið konkret vinstristjórn. Því skil ég ekki þetta með minnið. Eru flokkarnir í dag fullkomnlega sambærilegir við kommana, og er það það sem fólk man (eða á að muna) eftir? Ég get ekki á nokkurn hátt fallist á það. Ríkisstjórnin hefur skitið á sig trekk í trekk og það er einfaldlega löngu kominn tími á að skipta um bleyju.
Heyrðu, lagsmaður, þetta síðasta er stolið, er það ekki? Ég sá Mann ársins einmitt í kvöld.
Ég á einfaldlega við að ég vil ekki að til verði þriggja flokka vinstri stjórn eftir helgina. Íslendingar hafa vonda reynslu af þeim.
Síðan er ég að reyna að segja að eina leiðin til að koma í veg fyrir það virðist vera að kjósa Sjálfstæðisflokkinn því að stjórnarandstöðuflokkarnir eru svo áfjáðir að sænga saman. En það er ekki hægt að kjósa báða ríkisstjórnarflokkana; það er ekki það sem ég á við. Ég vil að Sjálfstæðisflokkur verði með í næstu ríkisstjórn hver sem stelpan á ballinu verður.
Skil þig. Reyndar mun ég ekki styðja þriggja flokka stjórn, sér í lagi ekki þegar Hvítt afl er þriðji flokkurinn. En nú vantar aðeins herslumuninn uppá tveggja flokka vinstristjórn, ég iða í skinninu eftir fyrstu tölum
Ef fyrsta línan hefur komið fyrir áður þá hafði ég allavega ekki heyrt hana. Maður ársins, er það kvikmynd?
Já, Man of the Year er afleit gamanmynd þar sem grínisti (Robin Williams) verður Bandaríkjaforseti fyrir kosningamistök. Hann segir eitthvað á þessa leið í lok myndarinnar: „Politicians should be changed like diapers, frequently and always for the same reason.“
Ég iða í skinninu líka, en alls ekki af sömu ástæðum og þú.