Helvetica

Helvetica minnir á blótsyrðið helvíti og það á vel við.

Ég þoli ekki Helvetica, ekki frekar en Arial, en nú er hins vegar komin út kvikmynd um leturgerðina og hún vinnur til verðlauna. Þetta verður fróðlegt að sjá.

Comments

  1. „font-family:Arial, Helvetica, sans-serif;“

    Gaman að skoða stílsniðin hér. :)

  2. Binni segir:

    Já, þetta er skelfilegt. Stærsti gallinn við þetta snið.

  3. Hvaða leturgerðir af „sans-serif“ gerðinni kýst þú fremur? Áreiðanlega ekki Tahoma eða Verdana, er það?

  4. Binni segir:

    Ég er sjálfur hrifnastur af Trebuchet og Lucida Grande fyrir netið.

  5. Binni segir:

    En Lucida Sans Unicode er líklega það fallegasta sem ég sé á skjánum mínum!

  6. Trebuchet og Lucida eru fallegar leturgerðir. Þær, ásamt Georgia eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Svo ekki sé minnst á Courier New, þar sem við á að sjálfsögðu. :)

Submit a Comment