Orðskrípi

Ég hef mikinn dyn á orðskrípum, íslenskum og erlendum, sem mynduð eru með klifun og hljóðskiptum. Þau væru skemmtilegt rannsóknarefni og full ástæða til að ljá þeim merkingu við ný skilyrði. Þessi eru í uppáhaldi: fimbulfambi, dinglumdangl, pírumpár, tiktak, hrikkahrakk.

Orðaskýringar hér:

  • Fimbulfambi = nafnlaus bloggari
  • Dinglumdangl = nafngreindur bloggari
  • Pírumpár = moggablogg
  • Tiktak = blogggáttir/fréttaveitur
  • Hrikkahrakk = netstífla

Comments

  1. Kári segir:

    Hvað með ‘himpigimpi’?

  2. Binni segir:

    Jú, ekki má gleyma því snilldarorði. Á hvaða jakkaboðung ættum við að hengja merkingu þess á?

  3. Gagnslausar athugasemdir við pírumpár? :)

Submit a Comment