Úr heimsálfu sem ennþá verður að teljast nokkuð myrk — ekki síst vegna þess að samkynhneigð er þar ennþá fordæmd sem samfélagsmein, jafnvel bönnuð með lögum — kemur eftirminnileg hinsegin saga eftir úgandiskan femínista, Móníku Arac de Nyeko. Sagan hlýtur í ár Caine-verðlaunin sem kennd eru við breskan athafnamann og lávarð, Michael Caine. Mikjáll þessi hefur aldrei leikið í kvikmyndum svo vitað sé.

Sagan sem um ræðir heitir The Jambula Tree — hvað annað, í Afríku hverfist allt um tré. Hún fjallar um tvær æskuvinkonur sem elska hvor aðra. Þegar vináttan umbreytist í ást — já, eða við skulum segja þegar ástin kemur undan hvolfþaki trjánna og verður sýnileg í sólinni — leggur samfélagið fæð á stúlkurnar. Fjölskyldur þeirra bregðast að vonum hart við og senda aðra þeirra í útlegð til Englands. En þessar hugrökku stúlkur skammast sín aldrei fyrir ást sína hvor á annarri, jafnvel ekki þegar þeim er stíað sundur.
Þessa sögu mættu allir lesa sem hafa ennþá smekk fyrir hinu fagra og saklausa — og eru orðnir þreyttir á íslenskum fýlubombum. Söguna má lesa í smásagnasafninu African Love Stories sem kom út í fyrra í ritstjórn Ama Ata Aidoo. Ég bendi á þessa umfjöllun um nýja útgáfu bókarinnar.
Ég pantaði þessa bók á útmánuðum — þegar síðvetrarmæðan reyndi að hengja mig í ljósakrónunni — og gat ekki annað en glaðst þegar ég sá sögunnar getið í Morgunblaðinu í morgun. Þegar Afríkumenn, karlar eða konur, fá verðlaun á Vesturlöndum eru þeir nafngreindir í fjölmiðlum. Guði sé lof og dýrð fyrir sinn gleðilega boðskap.
Á heimleið 1991 hafði ég viðdvöl í Kampala. Í aðfluginu kvaddi ég vini og ættmenni í þögulli bæn því að ég hélt að flugvélin væri að hrapa. Kannski meira um það síðar.
Hvað þýðir Jambula?
Ég veit ekki hvort við eigum íslenskt heiti yfir jambula, en jambula-tré er ávaxtatré, ávöxtur þess minnir talsvert á greipaldin. Þessi tré eru býsna algeng í Afríku, ekki síst í Úganda, en einmitt í júlí má sjá hóp af börnum safnast undir þeim og hrista úr þeim ávöxtinn og fylla vasa sína af honum. Bragðið er ómótstæðilegt.
Bendi á þetta blogg Úgandabúans Francis X.G. Luyera frá því í fyrrasumar, en hann vinnur við SOS-barnahjálpina í Kakiri. Hann birtir þarna ljósmynd af þessu dásamlega fyrirbrigði.
Því má bæta við, að ávöxturinn þykir einkar megrandi, Geiri minn.
Sumir segja að hann hafi lækningamátt og lækni sykursýki. Ég sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Hérna er annar bloggari í Kampala sem fjallar um jambula.