Ég hef verið að rísla mér við að þýða nýjustu útgáfuna af WordPress-kerfinu, útgáfu 2.5, sem kom út 29. mars síðastliðinn. Nú er þýðingin tilbúin og þeir sem vilja nálgast hana geta sótt sér þýðingarskrána hér.
Ekki þarf að fjölyrða um það að ýmsar áhugaverðar viðbætur og endurbætur eru í nýju stigbótinni. Hvet ég alla sem nota WordPress að uppnýja kerfið hjá sér.
Frábært, takk. Núna fer ég að uppfæra truflun.
Ég var farinn að gæla við að gera þetta sjálfur en Poedit var bara alltaf að frjósa hjá mér þegar ég var að gera tilraunir.
Ég vona að þú verðir nokkuð sáttur. Ég er gamalt afturhald á sviði móðurmálsins og þess kunna að sjást nokkur merki í þýðingunni.
Ég var allavega mjög ánægður með síðustu þýðinguna þína og er enn að nota hana þó eitthvað vanti í hana.
Vanti semsagt eitthvað í hana því ég er með nýrra WP en hún byggir á.
Sæll Binni,
Ég þakka kærlega fyrir þýðinguna á WordPress 2.5 en hún mun koma mér og öðrum að góðum notum.
Kveðja,
Sammi
Þakka þér kærlega fyrir þýðinguna! Er búinn að vera að nota hana í smá tíma, og kann vel við nýju þýðingarnar hjá þér.
Kveðja,
Aðalsteinn