Netið

Ýtarlegri leiðbeiningar

Vegna fjölda áskorana hef ég endurbætt leiðbeiningar mínar fyrir íslenska þýðingu WordPress-kerfisins.

Tenglar, hlekkir eða krækjur?

Hvort eru tenglar hlekkir eða krækjur? Hver er munurinn á fíl?

WordPress 2.0 á íslensku

Ný útgáfa af vefumsýslukerfinu WordPress, útgáfa 2.0, kom út á áramótum. Ég hef nú lokið við að þýða hana á íslensku og geta íslenskir WordPress-notendur sótt sér þýðingarskrána hér. Þeir geta einnig sótt sér vinnsluskrána til þess að breyta þýðingunni eða lagfæra hana eftir eigin geðþótta.

Eins og að líkum lætur eru ýmsar áhugaverðar viðbætur og endurbætur í nýju útgáfunni. Ekki eru þó allir á eitt sáttir um stigbótina að þessu sinni. Sem dæmi nefni ég að Phu Ly í Lundúnum sér enga ástæðu til að fá sér nýju útgáfuna. Það gera ekki heldur þessir eðalnotendur: 1, 2, 3, 4. Flestir þessir notendur eiga það sameiginlegt að hafa lofsamað WordPress og sumir hafa búið til vinsæl hjálpargögn sem auka hæfni kerfisins. Rakel á Nýja Sjálandi fann að minnsta kosti fimm atriði sem henni líkar við í útgáfu 2.0 og Owen Winkler hefur skorað á þá sem ekki vilja nýju útgáfuna að færa rök fyrir ákvörðun sinni. Á síðu hans eru fjörugar umræður.

Ég hef sjálfur stigbætt WordPress vandkvæðalaust og skal ég nefna nokkur jákvæð og neikvæð atriði í nýju útgáfunni:

  • Viðbótin sem mér líkar best við er tvímælalaust sjálfvirka gagnaafritunin undir umsjón. Sú aðgerð gerir notanda kleift að afrita gagnagrunninn sinn milliliðalaust með því að smella á einn hnapp hvenær sem honum dettur í hug. Þetta geta notendur gert eins oft og þeir telja ástæðu til. Ef ég hefði haft þennan kost í fyrri útgáfunni hefði ég að líkindum ekki glatað gögnum þegar vefþjónninn bilaði í nóvember síðastliðnum. Það er gott að geta borið sjálfur ábyrgð á afritunum.
  • Einfaldaðri myndauppflutningur er líklega kærkomnasta endurbótin. Myndir eru nú fluttar upp um leið og færsla er skrifuð og á sama stað, en það er til mikilla bóta. Áður þurftu notendur að vista færsluna sína og færa sig um set til þess að flytja upp myndir. Síðan þurftu þeir að opna færsluna á nýjan leik og setja inn myndakóða í hana.
  • Fyrirferðarmesta nýjungin er líklega ritþórinn (Rich Text Editor; WYSIWYG; TinyMCE) en með honum er texti sniðinn um leið og hann er sleginn inn. Ritþórinn notar HTML-kóðun á bak við tjöldin svo notandinn geti einbeitt sér að skrifunum. Leturbreytingar, tenglar og myndir birtast því jafnóðum á sama hátt og á vefnum. Þetta er á hinn bóginn sú viðbót sem ég get síst fellt mig við, en til allrar hamingju er hægt að aftengja ritþórinn í stillingum. Þeir sem eru óvanir HTML-skipunum kunna sjálfsagt vel að meta þessa innbyggðu nýjung.
  • Akismet heitir innbyggt forrit sem safnar saman öllum amapósti sem ratar í umræðukerfið og kemur í veg fyrir endurtekningar. Hann er tvímælalaust til bóta fyrir þá sem ekki hafa tileinkað sér þessa tækni á annan hátt.
  • Önnur viðbót sem ekki verður hjá komist að nefna er flutningur. Með einni músarsmellu geta nýir WordPress-notendur nú flutt gögn úr öðrum bloggkerfum inn í WordPress. Þessi snjalla lausn styður gagnaflutning úr eftirtöldum kerfum: Blogger (blogspot-notendur), Movable Type, Textpattern og RSS-skrár.

Gaman verður að heyra hvað íslenskum WordPress-notendum finnst um nýju útgáfuna. Vonandi kjósa flestir þeirra að nota íslensku gerðina. Áfram íslenska!

Glataðar færslur

Nú er ljóst að færslurnar sem glötuðust úr gagnagrunninum um daginn vegna bilunar í netþjóni verða ekki endurheimtar. Það skiptir engu máli. Þær voru glataðar hvort sem er!

Nú verður einungis haldið áfram þar sem frá var horfið.

Tilkynning um bilun

Fyrir nokkrum dögum varð alvarleg bilun á vefþjóninum sem hýsir þessa heimasíðu. Af þeim sökum eru allir pistlar mínir frá júlí til nóvember horfnir. Heimasíðan er eins og ég skildi við hana 23. júlí í sumar, þá staddur á Spáni. Unnið er að viðgerð.

Útliti breytt

Ég var ekki sáttur við útlitið. Heimasíðan var of dökk. Mér fannst eins og ég þyrfti að kveikja ljós. Það hef ég nú gert. Ég vona að fastagestir mínir taki þetta ekki óstinnt upp.

Síðan mín var ekki einungis of dökk, heldur var letrið of smátt fyrir minn smekk. Sérstaklega fannst mér bagalegt hversu smáar athugasemdirnar voru.

Ég er nú nokkuð sáttur og get haldið ótrauður áfram að fullnægja þörf minni fyrir að skrifa á netið.

Gaman væri að heyra álit ykkar á útlitinu. Sniðmátið er byggt á þýskri hönnun, Blix, sem Sebastian Schmieg á veg og vanda að fyrir WordPress-samfélagið. Ég hef þó knúið fram nokkrar breytingar á því og bætt við nokkrum veftólum.

Séríslenskir stafir í lénum

Hver er munurinn á reykjavik.is og reykjavík.is? Að sjálfsögðu enginn.

Umræðan um lén með séríslenskum stöfum heldur áfram. Ég bendi á þessa færslu Örvars, sem ber yfirskriftina „Gróðafíkn ISNIC“.

Einnig er Netvistun með mótmælalista (sem verður kannski einhvern tíma bænarskrá), en netverjar geta skráð sig á listann til þess að mótmæla stefnu ISNIC.

Leitað að snillingum

Þegar góðir forritarar eru jafnframt góðir hönnuðir er gaman að horfa út um þakgluggann sem kallast skjár!

Eftir að hafa vafrað um Netið í nokkra sólarhringa hef ég komist að því að fjölmargir snjallir hönnuðir og forritarar þarna úti taka WordPress bloggkerfið fram yfir Moveable Type og telja sig hafa ærna ástæðu til.

Hverju þeir fá síðan áorkað þessir snillingar með bloggkerfinu finnst mér með hreinum ólíkindum.

Tökum til dæmis Dunstan Orchard (sem allir halda að sé hommi). Takið eftir því hvað vefurinn hans er áferðarfagur. Og takið einnig eftir því hvernig hann umbreytir einföldu athugasemdakerfi á heimasíðunni sinni í gagnvirkt umræðutorg með nokkrum einföldum verkfærum. Tær snilld!

Dunstan á einnig heiðurinn að því að ég get notað eyktamörk í staðinn fyrir hrútleiðinlega vélræna tímasetningu hér á heimasíðunni.

Nýr vefur

Nú er ég að leggja lokahönd á nýjan vef á nýrri slóð. Að þessu sinni set ég upp nýja heimasíðu á eigin léni, binni.is. Þar með hefur langþráður draumur rætst.

Ég vona að þeir sem hafa verið fastir gestir á fyrri síðum mínum breyti tengingum og haldi áfram að heimsækja mig. Ég hef sett upp nokkrar undirsíður með skýringum og upplýsingum um hvernig ég hugsa þennan vef. Ég hvet ykkur öll til þess að lesa þann texta.

Þessi vefur á eftir að aukast að umfangi þegar fram líða stundir. Ég hyggst að mestu sameina þá tvo staði sem ég hef verið á frá árinu 1999, annars vegar heimasíðu mína á Háskólavefnum og hins vegar annál minn á Annáll.is.

Efnisflokkar eru allmargir og birtast jafnóðum og í þá er fyllt.

Adolfo Binni

Biskupinn af Nólu á Ítalíu 1952 til 1971 hét Adolfo Binni.